Jeg er einsog jeg er, afþví að jeg skrítnaðist!
14.03.2006 12:54:12 / asta

Hér er jeg

http://www.heimurastu.blogspot.com

» 0 hafa sagt sína skoðun

06.02.2006 14:04:01 / asta

Dai-hatsú!!

Gósan das

Hnerr.. já geri voða lítið annað en að hnerra núna.. stuð ha?? Jeg held að það sé öllum bolonum að kenna.. það er nebbla svo mikið ryk í þeim..

Hmm hvað á jeg að fá mér í svanginn.. mig langar í eikkað geðveikt gott en það er nú ekki mikið úrval hérna.. Jeg get keypt mér rándýran mat á matartorginu.. síðan er það náttla Nettó en þar get jeg bara keypt mér frekar svona óspennadi mat eins og t.d. samlokur.. hmm spennandi... Síðast er það síðan pylsa og kók í ísbúðinni..

Jæja jeg er farin að leyta mér að einhverju í svanginn

Hmm keypti mér alveg rándýra kjúklingaloku á Matartorginu.. já hún var vond!! fullt  af beinum í henni og bara læti.. en sem betur fer fylgdu franskar með og jeg át þær með bestu lyst.. Svona er lífið bara

Vitiði fólk, klukkan er orðin fjögur.. vá hélt aðhún væri svona tvö.. en jeg þreif búðina hátt og látt í morgun..merkilegt nokk

Já eins og margir vita þá er búðin mín beint á móti Ogvodafone, já og svona þegar það er lítið að gera hjá mér þá sit jeg oft  og stari eikkað útí loft en oft berast augun mín að vodafon... og það sem mér finnst vera ótrúlegt er hve margir eru að kaupa Gemsa á hverjum degi.. alveg fullt af fólki skal jeg segja ykkur..

Bliss

(hvísl) Fólkið er hérna..



» 0 hafa sagt sína skoðun

05.02.2006 15:59:18 / asta

Lætismæti.. Fólk sýnið á ykkur kæti!

Daginn fólk

Jeg ætla bara að byrja á því að biðjast afsökunar á látunum í mér í gær.. en svona gerist víst þegar maður er komin vel í glas.. Enginn þynnka í gangi hjá mér en slæmur hálsrígur er að pirra mig núna..

Já fólk 18 dagar í ammlið mitt og 20 dagar í ammlispartýið.. Og vil jeg bara gefa fólki smá forskot á málin sko.. Já þetta verður svona Etíspartý þannig allir þurfa að finna sér réttan klæðnað..

jæja meira um það seinna

Bliss

» 5 hafa sagt sína skoðun

05.02.2006 01:04:14 / asta

kisi jájá

Jebb góða nótt pípol

æm in som party.. end æm só drunk..jájá

segjum það í bili

Bliss

» 2 hafa sagt sína skoðun

03.02.2006 14:26:47 / asta

Samsæri skilurru?!?

Daginn

ok fólk jeg er sko ekki að djóka með þetta.. fólkið er komið aftur!

Já ekki margt í fréttum annars.. Jeg fékk meir göt í eyrun í gær og er því svaka gella núna 8) síðan keypti jeg mér 6 mánaðakort á Bjarg og ætla að fara að stunda líkamsrækt að krafti..

Já umræðan í dag hefur verið á að reka Silvíu Nótt úr júróvisjón? Jeg segi nei.. ekki það að þetta sé gott lag.. en hún á samt eftir að valta yfir hin lögin.. ekki það að hin lögin séu eikkað betri eða verri en þetta er bara svona.. Við íslendingar munum kjósa greyið Silvíu til að fara fyrir hönd okkar í júróvisjón.. og já hún mun mjög líklega komast áfram í ðe ríl keppnina... já og hún mun mjög líklega vera frekar ofarlega... kannski er þessvegna sem fólk er með þetta vesen.. núna eigum við einhverja möguleika á því að vinna.. og litla ísland hefur ekki efni á að halda keppnina.. Ætli RÚV hafi ekki bara lekið laginu til að skapa þetta vesen.. eða kannski einhver af hinum keppendunum, sem þoldi ekki að vita að hún myndi valta yfir hann.. ha humm?? Mikið samsæri í gangi held jeg..

Jeg er að borða heilahnetur..



Bliss í bili


» 3 hafa sagt sína skoðun

02.02.2006 10:34:14 / asta

Pósturinn Anonymous og kötturinn mús!!

Daginn fólk

Maður er alltaf að komast að einhverju nýju hérna í vinnunni.. já haldiði bara ekki jeg sé með afslátt á Kaffitorginu og líka hinu megin þar sem maturinn er seldur.. svo gæti jeg verið með afslátt í Nettó og apótekinu.. Huh?? segi jeg nú bara.. jeg er búin að vinna hérna í meira en mánuð og hafði sko ekki hugmynd um þetta...

Jeg var að skúra.. svona er jeg stundum dugleg sko.. en núna sit jeg bara á bossanum og bíð þess að pósturinn komi.. og þá er spurningin.. Mun pósturinn koma eða ekki??

Já pósturinn kom með fullt af dóti og tók líka alla kassana sem voru hérna í horninu mínu.. núna get jeg loksins gert morgunleikfimiæfingarnar mínar..

Heimir ef þú ert að lesa þá verðu bara að koma.. fullt af nýjum bolum!!

ok fólkið sem var hérna á Glerártorgi í gær í marga klukkutíma er mætt aftur.. jeg er bara eitt spurningamerki.. hvað í ósköpunum er það að gera hér?

Það er slæmt að vinna í þessari búð.. jeg meina þúst jeg get ekki staðist það að kaupa mér einn og einn bol svona.. jeg átti nú nó af þeim fyrir og núna held jeg að jeg þurfi að flytja í vöruskemmu til þess að koma öllum þessum fötum mínum fyrir8|

Bliss





» 0 hafa sagt sína skoðun

01.02.2006 15:19:41 / asta

Að drekka kók að eilífu??

Daginn fólk

Kraftaverkin gerast enn fólk.. Jeg Ástan ætla að gerast hasarkroppur.. já jeg ætla í ræktina og jeg ætla meira að segja að fá mér einkaþjálfara í mánuð.. kannski 2 mánuði... úff.. en jeg held að þetta muni bæta mitt geð.. úff þetta verður samt svoo strembið.. nebblilega þá ætla jeg að fara á morgnana áður en jeg fer í vinnuna og fólk vitiði hvað það þýðir??? Já jeg þarf að vakna fyrir klukkan 8 á morgnana.. hver sér það gerast.. ekki jeg allavega.. en jeg verð það kostar marga penga að fá sér einkaþjálfara og það þýðir þá ekkert að skrópa.

Já margt að gerast í þessum mánuði sko.. já jeg á náttla ammli og það verður sko svaka teiti.. síðan ræktin .. og síðan var jeg að ákveða að fá mér göt eyrun..

Cure-kúrinn er að standa sig núna..

Vitiði fólk að það er oft fólk hérna á torginu í marga klukkutíma.. kemur kannski klukkan 11 og er að fara heim klukka 17(5) .. hvað er það eiginlega að gera hér.. Týnt í rúmmfatalagernum segi jeg!

Jæja jeg ætla að kaupa mér Kók og drekka það með bestu lyst.. kannski er jeg að fara að hætta að drekka kók og Hreinsi veistu hvað það þýðir.. jebb eimmitt haha gott á þig!!

Svona þegar það er ekkert svo mikið að gera í vinnunni þá er maður oft að hugsa mikið svona um hitt og þetta.. Jeg man þegar jeg var yngri þá safnaði jeg límmiðum og servéttum.. rosa stuð og þett kostaði ekkert svo mikið.. man að jeg labbaði stundum í hús með vinkonum mínum og fólk gaf okkur sérvéttur..

Það eru ótrúlega fáir sem voru memmér í bekk búir að eignast barn.. Nokkrar stelpur en engir strákar svo jeg viti.. en þeir sem eru búnir eða eru óléttir eru: Agnes, hún var sú fyrsta. Rakel og Kristbjörg voru næstar, áttu með nokkurra daga milli bili sem er mjög fyndið því þær eru bestu vinkonur.. Síðan var jeg að frétta að Dóra væri búin að eiga.. síðan er Helena ólétt komin svona 5 mánuði á leið.. og síðast en ekki síst hún Lína, hún er komin tæpa 3 mánuði á leið:D

Jæja kem kannski með fleiri innlegg hérna á eftir

Bliss

» 2 hafa sagt sína skoðun

30.01.2006 10:43:44 / asta

Hér er Matur, um mat, frá mati, til matar..

Ojj það er svo mikill mánudagur.. jeg ætlaði að fara á fætur aðeins fyrr í morgun til að skella mér í smá sturtu áður en jeg færi í vinnuna en það mistókst herfilega.. átti nógu erfitt með það að drattast inná bað til að tannbursta mig..

Úff alltof glatt barn hérna rétt í þsessu.. strákur svona 12 ára fótbrotinn á hækjum og gjörsamlega gat ekki hætt að glotta..

jæja mikil uppgötvun í gangi... JEG GLEYMDI VESKINU MÍNU HEIMA OG JEG MUN SS SVELTA HÉRNA Í VINNUNNI Í DAG.. búhú.. jeg er svöng.. bankinn opnar reyndar klukkan 12 ætli jeg reyni ekki að meika það þangað til þá.. En samt afþví að jeg veit að jeg get ekki fengið mér að borða þá verð jeg bara ennþá svangari.. Jeg er svangur, jeg er svangur í allan dag

Jeg er að bíða eftir póstmanninum.. jeg hef ekki fengið sendingu síðan á þriðjudaginn seinasta.. það er bara eins gott að jeg fái hana núna.. þarf endilega að losna við þessa stóru kassa sem eru að yfirtaka allta þetta litla pláss sem jeg hef hérna..

Jæja þó að klukkan sé lítið þá er ssamt í einhverju óvenjulegu stuði.. held að ástæða sé sú að jeg var að setja Cure á fóninn.. lallallalaaaa.. hehe..

Nú er klukkan tvö.. og jeg er löngu búin að éta.. var svo svönga áðan að jeg kaupti mér eikkað rándýrt að éta en það e í lagi því jeg var svoo svöng... Síðan kaupti jeg mér bitafisk.. úú jeg elska harðfisk.. en núna angar búðin mín líklega af harðfisk.. sem er ekki gott.. hehe

Enn bólar ekkert á sendingunni.. og reyndar hef jeg bara ekkert séð póstinn í dag..

Úff það er bara búið að vera brjálað að gera í dag.. alveg ótrúlegt bara...

Ohh kók er svö gott.. sérstaklega ískalt kók.. mmm


Jeg ætla að kenna Línu um þessi úrslit.. hún er sú eina sem jeg þekki sem drekkur pepsi... þannig skamm Lína fyrir að kjósa þennan óbjóð..


Bliss í bili

» 10 hafa sagt sína skoðun

28.01.2006 11:20:18 / asta

Hver man ekki gömlu góðu dagana

Góðan dag

Enn og aftur fái þið svona fínt vinnublogg.

Hver man ekki eftir Rokklingunum.. ægilega vinsælir þó að þeir hafi ekki náð að mínum dyrum.. Man eftir einu lagi, Grease-laginu.. reyndar mjög fyndið myndband við það minnir mig.. En pælið í því að það hafa ekki komið nýjir Rokklingar.. það var gerð einhver tilraun fyrir svona 3 árum með Kiðlingunum en það mistókst herfilega hehe.. Núna legg jeg til að Einar Bárða taki sig til og stofni nýja Rokklinga svo öll litlu börnin geti nú haft góðar fyrirmyndir.. eikkað annað en Britney Spears, Nælon eða Eminem.. þetta er allt meira og minna stórbilað fólk..

Svona fyrst að maður er byrjaður að tala um fortíðina þá ætti jeg kannski líka að minnast á það að það mætti byrja að sýna gömlu góðu barnatímana, og hætta með þetta rusl sem er verið að sýna núna.. t.d. Stundin okkar sem er núna er algjört sorp.. hver man ekki eftir gömlu stundinnni með Brúðubílnum.. líka man jeg eftir konu sem var með Stundina fyrir svona 6-8 árum held jeg.. en hún var með svona vísindastund.. mér fannst það æðislegt enda hafði jeg óþreytandi ánægju á því að læra um vísindi.. Og þó að jeg hafi hatað Gunna og Felix þá fannst mér Stundin samt vera betri þá en hún er núna..

Síðan mætti alveg sýna gömlu góðu þættina eins og Einu sinni var, Múmínálfana, Jóa áðnamaðk, og þanna dýralífsþáttin fyrir börnin sem var svona Talkshow með eðlu og einhverju öðru dýrir og þeir opnuðu einhverja dyr og fóru í heimsókn hingað og þangað að skoða dýralíf heimsins, mjög fræðandi þáttur og síðan var alltaf spurt spurninga úr þættinum í endan og maður átti að svara.. þá gat maður séð hvort maður hafði lært eikkað.. mjög sniðugt..

Jæja nó í bili en ef þú ert að lesa þetta núna þá skaltu vita að það kemur líklega meira seinna í dag þannig þú verður að kíkja aftur á eftir..

og endilega kommentið fólk bara svona uppá djókið

Bæjó í bili þó..

bliss

» 10 hafa sagt sína skoðun

26.01.2006 11:05:47 / asta

Spurnig um að fara réttu megin

Góðan daginn fólk

Jeg sit hérna í vinnunni að vanda og býð eftir að einhver komi í búðarleik við mig.. Já fólk útsalan er byrjuð.. þannig allir mega fjöllmenna til mín og gera kostakaup...

Það er nú bara frekar kalt hérna.. er svona að spá hvort jeg eigi að kaupa mér heitt kakó eða hvort jeg eigi bara að sitja hérna og vera kalt.. jæja bíðið aðeins meðan jeg fer og kaupir mér kakó...


Jæja jeg er komin aftur með kakóið en það er samt of heitt til að drekka það..

O vitði hvað jeg gerði í gær.. nei þið vitið það ekki.. en  að vanda þá þurfti jeg að hlaupa á klósstið.. en já allavega öll stelpu klóstin voru upptekin þannig jeg stekk inná kallaklóstið og enginn var þar þannig jeg alveg gjörsamlega flýtti mér eins og jeg gat að pissa og svona... en akkúrat þegar jeg er að labba  út og er að fara að þvo mér um hendurnar þá kemur kall inn og er alveg að fara að rífa niður um sig buxurnar.. jeg gríp bara fyrir augun og segi "ó, ó" jæja hann hlær bara og segir mér að jeg sé eikkað að villast..

Jæja nó í bili :)

Bliss

» 4 hafa sagt sína skoðun

22.01.2006 19:40:15 / asta

People said I was dumb, but I proved them

Kveldið fólk

Svaka djamm í gær.. Fór til Möggu og byrjuðum við þar svona aðeins að fá okkur í glas, síðan krössuðum við ammælispartyið hennar Dagnýjar sem var haldið í kjallara Sjallans.. Já og má segja að þar hafi drykkjan hafist fyrir alvöru.. fékk mér nokkur skot og síðan báðum við Magga barþjónin að koma okkur á óvart.. og hann gerði það svo sannarlega hann setti 4 skotglös fyrir framan okkur.. semsagt tvö á mann.. jájá síðan bjó hann til eikkað voða gums og helti í glösin.. jæja við ætluðum að borga en hann sagði bara "Þetta er ekki búið" síðan setti hann 4 skotglös í viðbót og bjó til eikkað meira gums og helti í.. en svona já þetta kostaði 600kall.. sem er bara pínulítið ha!! já það sveif hratt á okkur Möggu eftir þessa rússibanaskotglasaherferð en við vorum sko ekki nærrum þvú hætta og má bara segja að þetta hafi endað með því að jeg var búin að borga mig inní Sjallan á Á móti Sól.. já svo drukkin var jeg.. Jæja jeg var ekkert að plumma mig þar en dansaði eikkað smá og reyndi síðan að vera grúppía númer 1 en það gekk eikkað illa..

Jæja svo fann Halli mig og við fórum upp á Dátann og dönsuðum þar og svo fórum við niður og svo aftur upp og þá var jeg alveg búin á því og þá var sjallanum lokað þannig við Magga, Fjölnir, Inga og Jói fórum heim til Magz og Fjölla og borðuðum kalda pizzu og svona jæja síðan að lokum fór jeg heim klukka hálf 6 og steinsofnaði..

Vaknaði síðan eldhress í morgun þegar mamma hringdi klukka 15..

Það sem hæst bar í gær var að:
  • Svona 100 manns stoppuðu mig til að segja mér hvað hárið mitt var flott
  • 4 skot á 600 kall
  • Halli heldur að jeg gæti unnið Ungfrú Norðurland og ætlar að skrá mig í hana
  • Inga kyssti strák sem er 5 árum yngri en hún
  • Mér tókst bara nokkuð vel að mála mig í gær
Jæja núna er jeg bara ósköp mygluð með leyfar af augnmálingu gærdagsins og já held að það sé bara búið núna

Bliss

» 2 hafa sagt sína skoðun

21.01.2006 13:30:23 / asta

Fluggidífluggflugg

Góðan dag jájájá

Úff voða erfitt að vakna í morgun.. en maður drullaði sér samt á fætur og já hér er jeg..

Fór í bíó í gær með Helgu og Hólgeir á myndina The fog.. sosum ágætis mynd en ekkert ofgóð.. Samt fyndið að þegar við komum í bíóið og vorum að setjast niður þá var Inga, Magga og Geiri í bíó líka.. sátu bara beint fyrir framan okkur..

Ohh jeg ætlaði að skrifa eikkað merkilegt en jeg man ekki hvað það var.. kemur kannski seinna..

Já fékk hérna merkisfréttir.. en það kemur ykkur ekkert við.. hjéhjéhjé

Hey hafi þið eikkað heyrt um það að System of a down séu að koma til Íslands??

Slúðurhorn Ástunnar
  • Hljómsveitin Brothers Majere gisti einu sinni heima hjá mér.. Fínir gæjar
Jæja jeg er orðin svöng og er svona að pæla í að fá mér að eta..

Haha jeg fékk mjög skemmtilega spurningu áðan.. "seljiði tannkrem?"  Er eikkað sem bendir til þess að selji tannkrem í þessari búð??  Og svo sagði hann " ég kem aldrei inní þessa búð aftur fyrst að þið seljið ekki tannkrem" JÁ eins og mér sjé ekki alveg sama...

Bliss í bili



» 0 hafa sagt sína skoðun

20.01.2006 11:22:09 / asta

Bóndadagurinn genginn í garð

Góðan dag gott fólk

Nýjasta æðið hjá mér í dag er Heitt kakó á morgnana.. Mjög gott að fá sér þannig maður er nebbla saddur frekar lengi á eftir.. En þetta er dýrt 300 kall fyrir kakóið og 10 fyrir glasið..

úff þanna plataði pósturinn mig.. hann stoppaði fyrir framan búðina og skoðaði stóra pakkann sem hann var með á vagninum sínum.. en ok hann labbaði áfram..

Á brenndi mig á kakóinu..

Það er föstudagur í dag.. og fjölskyldan mín er að fara til rvk og jeg verð bara alein heima.. og jeg þarf að vinna á morgun þannig jeg get ekki einu sinni haldið smá teiti.. en jeg á ammli ekki eftir svo langan tíma.. reyndar alveg mánuð.. en þið vitið öll hvað tíminn lýður hratt þessa dagana.. og já fólk það verður sko party þá..

Jæja skrifa kannski meira á eftir fólk

Jæja klukkan orðin hálf 4 og jeg er búin að selja alveg hegling.. já doddi mix að mæta á svæðið.. hehe

Hey hver man ekki eftir Spk.. hehe.. Mig langaði alltaf geðveikt mikið í það en það voru bara skólar á Stórreykjavíkursvæðinu sem tóku þátt.. en jeg er nokkuð viss um það að jeg hefði unnið Sega tölvuna sem var í aðalvellaun..

Það er fólk að tala saman hérna í búðinni minni um hvað það hafi fitnað um jólinn.. sýnist að önnur sé ólétt.. þannig það er kannski alveg eðlilegt að hún fitni..

Hehe Ella frá Mývatni er hérna.. lítur alveg út eins og íkorni...og talar jafn hratt og íkorni mundi gera ef hann gæti talað.. En jeg held að af ykkur lesendum góðum þá muni Helga ver sú eina sem veit hvað jeg meina :haha:

Lína kom með alveg snildar innlegg í gestabókina mína "það eina sem gildir í lífinu er að finna gaur með stórt typpi!! :D"  Jeg er nú ekki alveg sammála en jú þau verða víst að vera semi stór og helst bara svona passlega breið.. jeg er sjálf ekkert hrifin að risa typpum því jeg er með svo litla kisu..  En jeg sá einhverja klámmynd um daginn með gaur með alveg RISA STÓRt typpi og þá meina jeg að kona hafi bara verið að æfa sig að fæða svo stórt var það.. já ef einhver gaur myndi mæta með svo stórt typpi upp í mitt rúm þá myndi jeg nú bara segja "STOPP.. bíddu aðeins væni.. jeg vill engan svona risa göndull í mína litlu kisu!"

Já alltaf skemmtileg blogg á ferð frá Ástunni

Vill endilega benda á bloggið hér á undan en það var sko merkisblogg

Bliss

» 3 hafa sagt sína skoðun

17.01.2006 10:26:08 / asta

Að lykta eða ekki lykta..

Góðan daginn, daginn, daginn!

Ekki góður hárdagur samt.. hafði ekki tíma til að greiða mér í morgun sökum þess að jeg sofnaði svona aðeins þegar jeg var búin að borða hafragrautinn minn.. og vaknaði 10 í 10.. og þurfti að flýta mér smá og hárið var ekki innifalið í flýtipakkanum..

En annarz þá sit jeg bara og er að bíða eftir að fá sendingu.. já alltaf gaman að fá sendingu.. þá þarf jeg að nota úber skemmtilega merki byssu og svona.. og skjóta merkimiða í alla bolina..

Í gær gerði jeg dáltið sérstakt, jeg kaupti mér eitt stykki af paprikuost og borðaði allan gaurinn... sem mun mjög líklega orsaka einhver prump hjá mér í dag.. en spurningin er hvort þau muni lykta vel eða ekki..

Celin Dion er að yfirgnæfa tónlistina mína núna.. og þegar það er ekki Cilla þá er það eikkað annað á létt fm.. mér finnst það bara ekkert sniðugt..

jæja nó í bili.. enda er klukkan bara 10:25

Jæja nú er klukkan orðin 13:30 og enn bólar ekkert á sendingunni minni..
Fór í Nettó áðan og ótrúlegt en satt þá fékk jeg bara ágætis mat þar..

OMG það er svo fokkings kalt hérna.. er svona að pæla á 10 mínútna fresti hvort jeg eigi að hlaupa í Centro hérna við hliðiná og kaupa mér síðu hlýjulegu peysuna sem er á þanna á útsöluslánni.. en jeg hef enn ekkoi gert það.. en jeg er bara ánægð að vera ekki að vinna í ísbúðinni.. pælið hvað það er kalt..

Fólk horfir einkennilega á mig.. jeg held að það sé útaf hárinu... það stendur smá útí loft..

Jæja nú er jeg búin að reikna þetta allt út.. fyrir hvern 1/2 líter sem jeg drekk af kóki eða öðrum drykk, þarf jeg að fara svona 2-3 á klósstið.. 1-2 ef jeg er mjög dugleg að halda í mér.. en það er ekkert sniðugt að þurfa að pissa oft þegar maður vinnur í búð með engu klóssti...

Hafi pælt í því hvað það er til mikið af skrítnu fólki.. allavega sé jeg margan manni hér á Torginu sem er kannski ekki alveg eins og hinir.. það er líka mun meira af gömlufólki sem er hér..

Ohh það kom einhver og skemmdi það fyrir mér að selja bara fyrir 200 kall í dag.. en það kom hérna einnhver gaur og kaupti 2 derhúfur.. og núna er eikkað barn að róta í nælunum og heyrðist mér að klinnkinu að hann sé með um 300 kall til að eyða.. en hann er með 11 nælur í húfunni sinni.. en það má alltaf bæta við fleirum..

Lína vinkona átti ammli í gær.. Til hammó með ammó í gæró Línó.. Hún bauð mér og fleiru fólki í kvöldverð og fengu allir að eta nema Anna magga.. en kom svo seint að allur maturinn var búinn.. hehe.. En við fengum nautakjöt og geðveikt góðar kartföflur.. jeg fór meira að segja aukaferð bara til að ná mér í meiri kartöflur.. svo góðar voru þær...

Úbbs.. strákurinn sem kaupti nælurnar var víst stelpa... hehe.. en já hún kaupti sér Iron maiden og Nirvana.. stundum þegar litlir krakkar eru voða æstir yfir að hafa fundið Iron maiden nælu eða eikkað annað í þeim dúr þá langar mér oft að segja.. "Nefndu eitt lag með Maiden".. og þá er spurningin: mun barnið geta svarað.. kannski, kannski ekki.. jeg meina Helga mín hlustaði á Nirvana á barnsaldri.. en samt maður einhvernveginn trúir þessu svona passlega.. Jeg vissi reyndar hvað mörg lög hétu með Sálinni en jeg var bara alin upp við hana..

úff þetta blogg er að verða of langt.. en jæja.. jeg fór í heimsókn til Möggu í vinnuna um daginn með Ingu.. uu já.. Þar hófust þær samræður að örbylgjuofnar eyðileggi næringarefnin í matnum.. Jeg hélt því fram að svo væri ekki.. en Magga mín sagði að næringarráðgjafinn hennar hafði sagt þetta.. jájá.. jeg svona tók þessu með varkárni en þar sem jeg vissi nú ekkert sérstaklega um þetta þá leitaði jeg til alnetsins og viti menn.. fann þessa góðu grein á Visindavefnum og já þetta var rétt hjá mér.. eina sem er ekki gott að elda í öbbanum er kjöt og mjólk en það er vegna þess að eina vítamínið sem er ekki sátt við að fara í öbban er B12.. hin vítamínin elskann.... sérstaklega vatnsleysanlegu vítimínin..  Þannig hafðu það næringarráðgjafi.. ekki segja einhverja vitleysu við fólkið sem þú átt að vera að hjálpa.. En við alla matreiðslu eyðast eikkað að næringarefnunum.. en það er bara eðlilegt..

Jæja nó í bili.. skrifa kannski meira á eftir

Bliss

» 4 hafa sagt sína skoðun

13.01.2006 15:33:32 / asta

Mikið afrek

Jeg gerðist ótrúlega dugleg og skipti alveg sjálf  um pappír í afrgeiðslukassanum.. hver hefur gert það??

» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8
Dagatal
janúar - 2012
S M Þ M F F L
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
293031
FyrriNæsti